HILDUR
FRELSISBORGIN
Ég berst fyrir frjálsu og réttlátu samfélagi – höfuðborg sem styður við fjölbreytileika mannlífsins. Nútímalegri höfuðborg sem tryggir borgurunum valkosti milli fjölbreyttra borgarhverfa, samgöngumáta og húsnæðiskosta. Höfuðborg sem tryggir frjótt og sveigjanlegt umhverfi fyrir fólk og fyrirtæki að þrífast, án íþyngjandi skattlagningar og opinberra afskipta.
Ég vil tryggja fjölbreytt rekstrarform í skóla- og velferðarþjónustu svo fjölga megi valkostum fyrir fólkið í borginni. Skólakerfið þarf að byggja á jöfnum tækifærum fyrir öll börn að þroska hæfileika sína - og skapa úr hæfileikum sínum tækifæri og verðmæti. Ég vil setja málefni fjölskyldunnar í forgrunn með aukinni áherslu á fjölgun leikskólarýma og gæði skólastarfs.
Hildur Björnsdóttir
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks