HELSTU ÁHERSLUR
Frelsi og val í samgöngum
Það er lífsgæðamál að tryggja greiðar samgöngur í Reykjavík. Ráðast þarf í löngu tímabærar endurbætur á stofnvegakerfinu, efla almenningssamgöngur og fjölga hjólastígum. Tryggja þarf borgurunum fjölbreytta valkosti án þess að einn fararmáti þrengi að öðrum.
15 mínútna hverfi
Öll hverfi borgarinnar verði skipulögð með það fyrir augum að íbúar geti nálgast helstu verslun og þjónustu í 15-20 mínútna göngufæri innan hverfis.
Fjölbreytt úrræði eftir fæðingarorlof
Tryggð verði fjölbreytt úrræði fyrir fjölskyldur í kjölfar fæðingarorlofs. Fjölga þarf leikskólaplássum og daggæslurýmum, auka samstarf við atvinnulíf og bjóða heimgreiðslur fyrir þau sem vilja dvelja lengur heima með börn sín.
Grunnskóli í
fremstu röð
Reykjavíkurborg setji sér skýr markmið um árangur í grunnskólum borgarinnar. Samræmd próf verði innleidd og einkunnagjöf gerð skýrari. Borgin setji sér það markmið að koma grunnskólakerfinu í röð þeirra fremstu í Evrópu.
Daggæsla á vinnustöðum
Borgin veiti stærri vinnustöðum stuðning og sveigjanleika til að opna daggæsluúrræði fyrir börn starfsmanna. Þannig megi styðja betur við foreldra sem eiga í erfiðleikum með að komast aftur á vinnumarkað í kjölfar barneigna.
Lægri fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði
Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði eru hærri í Reykjavík en nágrannasveitarfélögum. Þessi háa skattlagning dregur úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og getu fyrirtækja til að skapa störf og verðmæti.
Sundabraut í einkaframkvæmd
Ráðist verði í lagningu Sundabrautar í einkaframkvæmd tafarlaust á næsta kjörtímabili. Lega verði valin með hagsmuni borgarbúa og Sundahafnar að leiðarljósi.
Valkostir í velferðarþjónustu
Mikilvægt er að fólk eigi fjölbreytta valkosti í velferðarþjónustu. Með stuðningi við einkaframtakið og fjölbreytt rekstrarform má auka frelsi, fjölga valkostum og mæta margbreytilegum þörfum.
Bílastæðastefna endurskoðuð
Endurskoða þarf bílastæða-stefnu borgarinnar og tryggja skynsamlegan fjölda bílastæða við uppbyggingu nýrra íbúða. Jafnframt þarf að endurskoða bílastæðagjöld á gjaldskyldum svæðum borgarinnar.
Stuðningur við sjálfstæða skóla
Borgin greiði sama framlag með öllum börnum í skólakerfinu, óháð því hvort þau sæki borgarrekinn eða einkarekinn skóla. Þannig mætti komast hjá skólagjöldum og tryggja öllum börnum jöfn tækifæri til að velja skóla við hæfi, óháð efnahag foreldra.
Verndun grænna svæða
Mikilvægt er að verja grænu svæði borgarinnar. Elliðaárdal mætti stækka og þróa áfram sem enn öflugra útivistarsvæði - Central Park Reykjavíkur.
Aukin jarðgangagerð í Reykjavík
Rannsaka þarf möguleika til frekari jarðgangagerðar í Reykjavík. Koma mætti nýjum stofnbrautum fyrir neðanjarðar í einkaframkvæmd og nýta landrými ofanjarðar fyrir rólegri hverfisumferð og mannvænna umhverfi.
Heilsuefling eldri borgara
Reykjavíkurborg stuðli í auknum mæli að heilsueflingu eldri borgara. Reynslan hefur sýnt jákvæð tengsl milli reglulegrar hreyfingar og aukinna lífsgæða á efri árum.
Sala fyrirtækja í samkeppnisrekstri
Hið opinbera á ekki að vera þátttakandi á samkeppnismarkaði. Réttast væri að borgin seldi fyrirtæki í sinni eigu sem eru í samkeppnisrekstri.
Skipulag nýrra hverfa í austri og vestri
Húsnæðisvandinn verður ekki leystur nema með stórauknu lóðaframboði. Skipuleggja þarf ný hverfi í Geldinganesi, Keldnalandi og Granda - og stækka Úlfarsárdal og Kjalarnes, að teknu tilliti til fyrirliggjandi byggðamynsturs.
Borg sem fagnar einkaframtaki
Reykjavíkurborg þarf að tryggja einfaldara og sveigjanlegra regluverk - og vinveitt umhverfi fyrir þá sem vilja sækja fram.
Fleiri heitir stígar
Ráðist verði í upphitun nýrra göngu- og hjólastíga í Reykjavík. Vegna íslenskrar veðráttu þurfum við að gera betur fyrir gangandi og hjólandi. Til upphitunar er tilvalið að nýta hreina íslenska orku og/eða affalsvatn.
Séreignarstefna á húsnæðismarkaði
Besta leiðin til að tryggja fólki efnahagslegt sjálfstæði og öruggt húsnæði er að gera því kleift að eignast eigið heimili. Mælingar sýna að stærstur hluti landsmanna vill eignast sitt húsnæði. Leggja þarf aukna áherslu á séreignarstefnu á húsnæðismarkaði.
Móttökudeildir í grunnskólum
Börn sem flytja hingað til lands og þekkja ekki íslenskt málumhverfi hefji grunnskólagönguna í sérstökum móttökudeildum. Deildirnar tryggi þeim mýkri lendingu og betri tækifæri til að aðlagast samfélaginu. Áhersla verði lögð á nám í íslensku og fræðslu um íslenska menningu.
Borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15
Árið 2018 fjölgaði borgarfulltrúum úr 15 í 23. Fjölgunin var kostnaðarsöm og hefur aukið á flækjustig innan borgarkerfisins. Réttast væri að fækka þeim aftur.
