top of page

Er kominn tími á Sundabyggð?

Ríki og sveitarfélög undirrituðu á síðastliðnu ári samkomulag um uppbyggingu 35.000 íbúða hérlendis næstu 10 árin. Reykjavíkurborg skyldi byggja 2.000 íbúðir árlega fyrstu fimm árin. Áformin voru viðbragð við viðvarandi húsnæðisskorti sem jafnframt er fyrirsjáanlegur til framtíðar.


Staðan hefur hins vegar tekið nokkrum breytingum með hliðsjón af eldhræringum á Reykjanesskaga. Ofan á áður þekkta húsnæðisþörf bætist bráðavandi Grindvíkinga. Íbúar sveitarfélagsins bjuggu áður í tæplega 1.200 íbúðum í Grindavík, en þurfa nú að leita húsnæðis annars staðar.


Sundabyggð samhliða Sundabraut

Á fundi borgarstjórnar síðastliðinn þriðjudag lagði Sjálfstæðiflokkur fram tillögu sem byggir á því að fjölga skilgreindum uppbyggingarsvæðum í aðalskipulagi Reykjavíkur með hliðsjón af eldsumbrotum á Reykjanesskaga. Jarðhræringarnar hafa þegar sett ýmis uppbyggingaráform á stór höfuðborgarsvæðinu í uppnám. Aukinn þrýstur hefur skapast á ný svæði og kallar fyrirliggjandi bráðavandi á húsnæðismarkaði á yfirvegað viðbragð og skynsamlega fyrirhyggju.

 

Með tillögunni settum við á dagskrá umræðu um Sundabyggð – nýja íbúðabyggð á svæðum aðliggjandi Sundabraut. Mikilvægi Sundabrautar hefur að undanförnu verið undirstrikað. Þegar sú mikilvæga samgöngubót verður að veruleika opnast fjölmörg ný uppbyggingartækifæri á svæðum aðliggjandi brautinni, til dæmis á Kjalarnesi. Hugmyndina er bæði tímabært og skynsamlegt að ræða á þessari stundu.


Meirihlutinn klofinn um framtíð Reykjavíkur

Meirihluti borgarstjórnar treysti sér ekki til að taka afstöðu til tillögunnar á fundi borgarstjórnar. Var henni þess í stað vísað í nefnd, en þangað fara almennt allar góðar tillögur til svæfingar. Undirliggjandi ástæðan var hin augljósa ósamstaða meirihlutaflokkanna í skipulagsmálum borgarinnar. Þau treysta sér ekki til að standa saman að atkvæðagreiðslum um mikilvæg skipulagsmál, enda er sýn flokkanna á framtíðarskipulag borgarinnar gjörólík. Það er ljóst að svo ósamstæður meirihluti kemur varla nokkru í verk – og ekkert mun breytast.


Við sjálfstæðismenn erum skýr í okkar stefnu. Við teljum nauðsynlegt að ráðast í kröftuga húsnæðisuppbyggingu um alla borg. Við viljum skipuleggja ný hverfi samhliða því að þétta byggð innan hverfa sem hafa til þess svigrúm, í sátt við íbúa og umhverfi. Við viljum einfalda stjórnsýsluna, stytta afgreiðslufresti og skapa umhverfi sem er vinveitt hvers kyns framtaki. Við viljum endurskoða aðalskipulag og tryggja hagstætt lóðaframboð - því þó borgin beri ekki ein ábyrgð á húsnæðisvandanum, þá getur hún sannarlega lagt sitt af mörkum.




 

bottom of page