top of page

Reykjavík sem virkar fyrir eldri íbúa

Það er hlutverk sveitarfélaga að hlúa vel að eldri kynslóðum. Hækkandi lífaldri fylgja margvíslegar áskoranir en sannarlega líka tækifæri. Lýðfræðin gefur til kynna að framundan sé fordæmalaust tímabil fjölgunar eldri borgara. Íbúar Reykjavíkur eru þar engin undantekning.

Öldrun þjóðar á sér ýmsar birtingarmyndir og kallar á margvíslegt viðbragð. Til að mynda eykst þörfin fyrir ólík búsetu- og þjónustuúrræði ár frá ári. Jafnframt birtast aðrar kröfur meðal þeirra sem nú eldast, en ríktu meðal kynslóðanna sem á undan komu. Hækkandi lífaldri fylgir bætt heilsa um lengri aldur og auknar kröfur um spennandi lífsstíl, afþreyingu, félagsstarf og tómstundir. Kynslóð eftirstríðsáranna hefur að miklu leyti skapað þau lífsgæði sem við búum við í dag - þeirri kynslóð þurfum við sem yngri erum að mæta með nýrri hugsun og nýsköpun í öldrunarúrræðum.

Aukin húsnæðisuppbygging fyrir eldri Reykvíkinga

Vitanlega á höfuðborgin að taka forystu í málaflokknum. Hér duga engin vettlingatök því ef fram fer sem horfir mun ríkja verulegur húsnæðis- og þjónustuskortur fyrir eldra fólk áður en langt um líður. Gera þarf fólki kleift að búa heima svo lengi sem það kýs. Forsenda þess er öflug og samræmd heimaþjónustu og heimahjúkrun – ásamt persónulegri og skilvirkri þjónustu.


Jafnframt þarf borgin að tryggja nægt lóðaframboð fyrir einkaframtak að hefja umfangsmikla uppbyggingu fjölbreyttra búsetukosta fyrir eldri kynslóðir – til að mynda svokallaðra lífsgæðakjarna þar sem miðlæg þjónusta og afþreying er fyrir hendi. Barir, kaffihús, veitingahús og líkamsrækt í göngufæri og aðgengi að útivist. Velferðartækni ætti jafnframt að vera mikilvægur þáttur í öryggi og bættri aðstöðu í heimahúsum eldra fólks.


Lægri fasteignaskattar fyrir 67 ára og eldri

Forsenda þess að fólk geti búið heima eru jafnframt lægri skattar og álögur. Sjálfstæðisflokkurinn vill að tekjumörk vegna afslátta af fasteignasköttum þeirra sem eru 67 ára og eldri verði hækkuð sem nemur 1.800.000 kr. af árstekjum á einstaklinga og hjón/sambúðarfólk. Þannig verði afslættir færðir til samræmis við fyrirkomulag Hafnarfjarðarbæjar sem hefur tryggt öfluga þjónustu við eldri íbúa.


Heilbrigði og lífsgæði

Vel menntaðar, víðförlar og tæknilæsar munu eldri kynslóðir þekkja sín réttindi og hafa sterka skoðun á æskilegum lífsgæðum efri áranna. Reykjavíkurborg þarf að koma til móts við óskir og væntingar þessa hóps – og tryggja þeim heilsueflandi samfélag og bætt. Reykjavík sem virkar.




bottom of page