top of page

15 mínútna hverfi

Reykjavík stendur á tímamótum - spennandi umrótstímum sem kalla munu á breytingar. Það er lærdómur þess veruleika sem borgir heims mættu á tímum heimsfaraldurs og samkomutakmarkana. Fleiri þurftu að reiða sig á nærumhverfið til að þjóna daglegum þörfum. Borgarhverfin urðu áður óþekkt þungamiðja í hversdagslegu lífi fólks.


Aukinn fjöldi fólks sinnti störfum og námi frá heimili sínu. Vafalaust verður aukin fjarvinna og fjarnám varanleg afleiðing heimsfaraldurs. Starfsmenn munu verja fleiri vinnudögum innan hverfa. Námsmenn munu verja fleiri námsstundum innan hverfa. Frekari forsendur skapast fyrir fjölbreytta hverfisþjónustu – fólk mun síður vilja sækja langt yfir skammt.


Hugmyndir um hin svokölluðu 15 mínútna hverfi hafa rutt sér til rúms víða í erlendum borgum. Innan 15 mínútna hverfa má nálgast helstu verslun og þjónustu í innan við korters göngufjarlægð. Forsendur slíkra hverfa eru gjarnan þétt og blönduð byggð hvar íbúðarhúsnæði, vinnustaðir og þjónusta eru í nálægð hvert við annað.


Með 15 mínútna hverfum má stytta ferðatíma og bæta lýðheilsu - gera fleirum kleift að sinna erindum gangandi eða hjólandi. Með góðu borgarskipulagi má hafa heilmikil áhrif á lífsgæði, lýðheilsu og fjölbreytta félagslega þætti. Með lifandi nærþjónustu má ýta undir samskipti ólíkra þjóðfélagshópa - draga úr einsemd og félagslegri einangrun – skapa lifandi umhverfi þar sem fólk mætist og þekkist.


Ég vil að borgin verði endurskipulögð á forsendum hverfanna – á grundvelli sérstöðu þeirra og styrkleika. Öll borgarhverfi verði þróuð með það fyrir augum að unnt verði að nálgast helstu verslun og þjónustu í 15 mínútna göngufæri. Víða um borg standa lúnir hverfiskjarnar sem margir muna fífil sinn fegurri. Með samstilltu átaki og réttum skipulagsáherslum má glæða hverfiskjarna fyrra lífi - efla nærþjónustu hverfanna og einfalda hversdag borgarbúa. Skapa aukið mannlíf í lifandi borgarhverfum hvar hversdagslegar nauðsynjar finnast í korters kallfæri - hvar hversdagslegt líf verður einfaldara og betra.


Hildur Björnsdóttir






bottom of page